Hvað er hægt að húða?
- fyrir málma og gler
Pólýhúðun getur húðað alla málma og gler með Epoxy eða polyester dufti eða blöndu af þessu tvennu. Duftið fæst í öllum RAL litunum sem eru rúmlega 200 talsins en að auki eigum við til yfir 50 sérliti. Þessir litir fást síðan í 30%, 70%, 90%, og 100% glans auk áferða eins og strúktúr, Wrinkle, krokodílaskin eða glimmer. Duftið kemur fulllagað frá verksmiðjum erlendis og er ekki hægt að blanda á staðnum eins og með hefðbundin blautlökk.