Felgur
- Er ekki kominn tími til að hressa aðeins upp á felgurnar?
Algjör óþarfi að kaupa nýjar.
Það er óumdeilt að pólýhúðun er sterkasta húð sem hægt er að fá á felgur og ástæðan er þreföld:
- fyrst er húðað með epoxy grunn og bakað,
- síðan kemur liturinn úr polyester og bakað
- loks grimmsterk glæra og bakað í síðasta sinn.
Með þessari meðferð eru jafnvel jeppafelgurnar tilbúnar í krapa og drullu og illa meðferð uppá hálendi.
Þú einfaldlega kemur með felgurnar þínar dekkjalausar, við sjáum um sandblástur og lökkun.
Vinnslutími er að meðaltali 3virkir dagar
Lökkun og sandblástur kr. 45.500 fyrir 4 felgur 17” eða minni ál eða stál.
Lökkun án blásturs kr. 30.440 fyrir 4 felgur 17" og minni ál eða stál.
Lökkun án blásturs kr. 33.900 fyrir 4 felgur 18"- 22" ál eða stál.
Sandblástur 18"- 22" er frá kr. 18.000 til kr. 27.600 fyrir 4 felgur
Öll verð eru með virðisaukaskatti og eiga eingöngu við fólksbílafelgur.
Hægt er að velja um 300 liti með glæru eða glimmerglæru.
Einnig nokkrir metallic litir í boði.