RAL Litakerfið

- litirnir skapa umhverfi okkar

RAL kerfið er einstakt litakerfi með um 205 staðallitum en til er mjög fullkomið on mun stærra kerfi með þúsundum lita. Pólýhúðun á að jafnaði um 85% af staðallitum á lager og um 100 aðra sérliti með fjölmörgum áferðum.





- þurfum við litakerfi?

Mannsaugað getur greint milljónir lita en þrátt fyrir þessa miklu næmni okkar fyrir litum og birtustigum þeirra getum við átt í miklum erfiðleikum með að greina á milli líkra lita. Hérna koma litakerfi til bjargar. RAL litakerfið var fyrst búið til árið 1927 til að koma á móts við kröfur neytenda sem og framleiðenda um samræmingu á litum. Skoðaðu vel rauðu boxin hér að neðan.




Við fyrstu sýn virðast litirnir vera mjög svipaðir en engu að síður þá er 50% meiri grænn litur í hægra boxinu. Eins og sjá má þá eru litakerfi eins og RAL nauðsynleg til að samræma liti og gefa fólki þar með möguleika á að koma sér saman um litaval hvar sem er í heiminum.