Verklýsingar
- eftir aðstæðum
Eftirfarandi verklýsingar eru unnar eftir upplýsingum frá framleiðendum efnisins. Tekið skal fram að engin munur er á meðferð venjulegs og ryðfrís stáls fyrir utan kröfur um ryðvörn.
|
Hvað og Hvar |
|
Hvernig |
|
|
|
|
|
Húðun á nýsmíðuðu járni til notkunar innanhúss |
Járnið skal vera án málningarrestar, shop primer eða brennsluhúðar. Járnið skal fituhreinsað, iron-fosfaterað og þurrkað áður en það er húðað. Lakkað skal með polyester eða epoxy duftlakki sem á að bakast í 10 mínútur. Tryggja skal jafna bökun við 180 – 200°C þannig að járnið sjálft nái kjörhita áður en það er bakað í 10 mínútur. |
|
|
Húðun á nýsmíðuðu svörtu járni til notkunar utanhúss |
Járnið skal vera án málningarrestar, shop primer eða brennsluhúðar. Járnið skal fituhreinsað, zink-fosfaterað og þurrkað áður en það er húðað. Grunna skal með Epoxy primer og bakað síðan... Lakkað skal með polyester duftlakki sem á að bakast í 10 mínútur. Tryggja skal jafna bökun við 180 – 200°C þannig að járnið sjálft nái kjörhita áður en það er bakað í 10 mínútur. |
|
|
Húðun á nýsmíðuðu galvaniseruðu járni til notkunar úti |
Best er að glerblása galvanhúðina létt, síðan skal fituhreinsað, chromaterað eða tricationic-fosfaterað og þurrkað áður en það er húðað (Valmöguleiki að grunna með epoxy primer). Lakkað skal með polyester duftlakki sem á að bakast í 10 mínútur. Tryggja skal jafna bökun við 180 – 200°C þannig að járnið sjálft nái kjörhita áður en það er bakað í 10 mínútur. |
|
|
Húðun á járni sem er með gamalli málningu af óþekktri gerð til notkunar inni |
Ef málningarrestar, shop primer eða brennsluhúð er á járninu þá skal það sandblásið S2 ½ þannig að eftir sitji fín sandblástursáferð á járninu. Ath. Minnstu leyfar málningar skapa bólur á pólýhúðinni. Járnið skal fituhreinsað, zink-fosfaterað og þurrkað áður en það er húðað. Lakkað skal með polyester/epoxy duftlakki sem á að bakast í 10 mínútur. Tryggja skal jafna bökun við 180 – 200°C þannig að járnið sjálft nái kjörhita áður en það er bakað í 10 mínútur. |
|
|
Húðun á járni með gamalli pólýhúðun til notkunar inni |
Djúpar rispur skal pússa niður í málminn þannig að ekki finnist ef strokið er yfir með fingurgómum. Járnið skal fituhreinsað, zink eða iron-fosfaterað og þurrkað áður en það er húðað. Lakkað skal með polyester/epoxy duftlakki sem á að bakast í 10 mínútur. Tryggja skal jafna bökun við 180 – 200°C þannig að járnið sjálft nái kjörhita áður en það er bakað í 10 mínútur. |
|
|
Húðun á smíðajárni með eldhúð til notkunar inni |
Laus eldhúð skal hreinsast burt með vírbursta eða sambærilegu, best er að sandblása eða sýrubaða úr léttri saltsýrulausn. Járnið skal fituhreinsað, zink-fosfaterað og þurrkað áður en það er húðað. Lakkað skal með polyester/epoxy duftlakki sem á að bakast í 10 mínútur. Tryggja skal jafna bökun við 180 – 200°C þannig að járnið sjálft nái kjörhita áður en það er bakað í 10 mínútur. |
|
|
Húðun á nýju áli til notkunar inni |
Álið skal fituhreinsað, slípað eða krómaterað og þurrkað áður en það er húðað. Lakkað skal með polyester eða epoxy duftlakki sem á að bakast í 10 mínútur. Tryggja skal jafna bökun við 180 – 200°C þannig að álið sjálft nái kjörhita áður en það er bakað í 10 mínútur. |
|
|
Húðun á nýju áli til notkunar úti |
Álið skal fituhreinsað, slípað eða krómaterað og þurrkað áður en það er húðað. Fyrir mjög tærandi umhverfi má grunna með epoxy grunni fyrst. Lakkað skal með polyester duftlakki sem á að bakast í 10 mínútur. Tryggja skal jafna bökun við 180 – 200°C þannig að álið sjálft nái kjörhita áður en það er bakað í 10 mínútur. |
|
|
Undirvinna: viðauki |
Ef málningarrestar, shop primer eða brennsluhúð er á járninu þá skal það sand- eða glerblásið S2 ½ þannig að eftir sitji fín sandblástursáferð á járninu. Athugið að minnstu leyfar málningar skapa bólur á pólýhúðinni. |
|
|
Gljúft stályfirborð: viðauki |
Við grófa galvanhúð, gljúft stályfirborð eða mjög grófan sandblástur skal fyrst grunna með “Anti-Foam” grunni áður en húðað er til að loka yfirborðinu og leyfa útblástur innilokaðs lofts á bökunartímanum (ath. passar ekki með metal og special effekt litum, í þeim tilfellum verður að notast við annan grunn). |